Dagur 9
Þetta var hreint ekkert að ganga með hana júlíu. Alltaf þegar ég kem með góðar hugmyndir handa henni, þá snýr hún upp á þær.
Bara svo það sé á hreinu, það er ekki mín hugmynd að konur á þýskum sviðum geti bara verið hórur eða mæður, maría móðir eða maría hóra. Það er bara þannig. og hver er ég til þess að breyta því. Ég get ekki verið original allsstaðar.
Ég stakk til dæmis upp á því að hún væri alltaf að stjúka sér, enda er hún hrein mey og hlýtur því alveg að vera að missa það. En júlíu leyst ekkert á það, og það sem verra er, hún fékk leikkonurnar sem leika móður hennar og sérstaklega þá sem leikur fóstruna, með sér í lið.
Frábært, ég er kominn með kvennahópinn upp á móti mér.
hvað er að því að júlía sé að vakna til blóma síns? Hvað er að því að vera kynvera?
Og sérstaklega þykir mér ósanngjarnt að þær skuli nota það sem röksemdafærslu að júlía sé bara 14 ára. láta mér líða eins og ég sé einhver perri.
Það vita það allir að leikkonan er mun eldri en það.
Leikhús er ekki raunveruleiki.
Bíddu bara júlía þangað til ég fer að leikstýra næturgalasenunni...
Ég var að labba í bænum í dag og rakst að nýju á stepu sem var í veislunni í gær. Ég var eiginlega búin að ákveða það að það væru fleiri fallegir hundar í St Gallen en konur, en hún gæti alveg valdið því að mér snúist hugur.
Hún sá mig ekki
þriðjudagur, 19. maí 2009
mánudagur, 18. maí 2009
Rómeo og júlía - Uppsetningardagbók
Dagur 8
Ég reyndi eins lengi og ég gat, en það er bara hægt að æfa svo og svo lengi án þess að júlía komi á svið. ég komst bara ekki lengur undan því að æfa þær senur.
Vandamálið er ekki það að ég viti ekki að verkið heitir Rómeo og júlía heldur hitt, að ég skil bara ekkert í rullunni.
Og svo er helvítis vandamálið það að þó svo ég hafi beðið um ljóshærða, bláeygða, sakleysislega júlíu - og ég var mjög skýr með þetta - þá var það ignorað með öllu og þess í stað þá er ég með dökkhærða, brúneygða tilfinningabombu frá austur evrópu.
Og hvað á ég að gera með hana?
Maður hefur bara á tilfinningunni að hún muni éta Rómeó ef hún kemur einhversstaðar nálægt honum.
Ég notaði því fyrsa daginn í það að leggja fram breytingartillögur við rulluna hennar, við heldur dræmar undirtektir.
Berlínartrikkið virkar ekki á hana, kannski ég eigi að segja að ég hafi lesið þetta hjá Marx?
Note to self – skoða leikaramyndirnar ÁÐUR en þú byrjar að æfa.
Var annars í boði í kvöld þar sem allri fyrirmenn borgarinnar voru saman komnir. Það var ekkert tekið fram en augljóst var að ég var heiðursgesturinn. Sérstaklega er áhugavert að viðskiptalífið hér hafi svona brennandi áhuga á listinni og hitt, að ríku kallarnir hérna eiga afar myndarlegar dætur.
já eða hjásvæfur...

sunnudagur, 17. maí 2009
Rómeo og júlía - Uppsetningardagbók
Dagur 7
Sunnudagur. Frídagur. Hér í Sviss er þetta dagur hins veraldlega uppgjörs dulbúið sem kelvínískur helgileikur.
Finn að hér eru allir dauðhræddir við kreppuna miklu.
Ótti á götum og torgum. Enda mikið af óraunverulegum veraldlegum gæðum sem gætu tapast.
Tók mér Shakespeare frí í dag en bölvaður þrjóturinn neitar að sleppa mér. Hann er í raun eins og sníkjudýr af asbergerstofninum. Leggst á mann eins og mara og neitar að sleppa. Og gerir mann einrænan og íhugandi.
Spurningar eins og “hvað er maðurinn” koma upp þegar mig langar bara að horfa á fótbolta.
Gæti verið að í textum sínum endurspegli Shakespeare manninum, í sinni flóknustu og margbrotnustu mynd…
Eða kannski eru þeir bara rugl.
Ég trúi ekki á ástina. Sérstaklega ekki á leiksviðinu. Ástin er blekking, gríman sem fólk skellir upp fyrir framan skelfinguna sem fylgir því að vera einn.
Ég bý á hóteli.
Í eins manns herbergi.

föstudagur, 15. maí 2009
Rómeo og júlía - Uppsetningardagbók
Dagur 6
Þeir æfa á laugardögum í Sviss.
Þetta er náttúrulega skandall.
Ég sem ætlaði á náttúruminjasafnið.
Það var verið að opna sýningu um bjöllur og önnur fljúgandi skordýr. Ég upplifi skringilega tengingu við dýr.
Ég missti af sýningunni
Æfði próloginn í verkinu. Hann meikar ekkert sens.
Shakespeare segir okkur hvað muni gerast í verkinu - áður en það gerist.
Þannig ég lét þau fara með hann hratt. Sagði að það væri svona "Berlín"
Þeim finnst það spennandi.
Ég var ekkert að leiðrétta þau

Dagur 5.
Rómeo kemur á svið. Þetta er frægasti elskandi sögunnar. þegar við hittum hann í fyrsta skipti í þessum eilífðarleik um ást hans til júlíu er hann yfir sig ástfanginn af - Rósalind.
Hann hefur gengið nætursveltur sökum ófullnægðar ástar hennar í garð. Getur hreint ekki lifað án hennar.
Svona eins og þessi
(Reyndar veit ég ekki hvort er verra. Að horfa á konurnar í salnum syngja með um eilífa ást andartaksins í neðanjarðarlestinni af slíkri innlifun, eða söngvarann sem er að velja hverja þeirra hann ætlar að ríða baksviðs á eftir)
Shakespeare lætur ástmögur sinn vera alþjáðan ást - til annarrar konu en verkið er nefnt eftir.
Ég útskýrði fyrir leikaranum að þetta væru vörusvik.
Honum fannst það áhugaverð nálgun

Dagur 4
Ég æfði fyrstu senurnar.
Benvólíó og Montague. Þetta eru frekir karakerar. Sérstaklega Montague sem kemur varla fyrir í verkinu en heimtar samt að maður eyði tíma í að leikstýra viðkomandi.
En ég hef alltaf sagt að stærsti hlutinn við að vera leikstjóri sé að kunna nógu margar sögur til þess að segja.
Sérstaklega sögur sem hljóma eins og þær séu um eitthvað.
Og láta sem svo sé.
Benvólíó er leikinn af homma. Sá leikari heldur greinilega að verkið heiti Rómeó og Benvólíó (sem reyndar rímar). Hann er með nefið í hvers manns .... koppi.
Ég hló bara að honum

Dagur 3
Dagur sannleikans.
Ég sagði þeim að við ætlumum að byrja á endanum og vinna okkur afturábak í gegnum verkið.
Þeim fannst það ekki góð hugmynd.
Ég sagði þeim að ég hefði lært þetta í skólanum í Berlín
þau voru impressed.
Ég líka
Byrjaði á byrjuninni.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)